| Samstaða þjóðar NATIONAL UNITY COALITION Baráttusamtök fyrir sjálfstæðu ríki á Íslandi og fullveldisréttindum almennings. Stöndum vörð um Stjórnarskrá Lýðveldisins. |
Þekkingar- og ábyrgðarleysi gagnvart íslam.Fyrst birt í Morgunblaðinu 10. september 2015.
Ólafur Friðrik Magnússon.
Um þessar mundir berjast ýmsir hart fyrir því, að sem allra flestir flóttamenn komi hingað til lands, án tillits til þess kostnaðar, sem af því hlýst, og annarra afleiðinga fyrir Íslendskt samfélag. Nærtækara væri, að mínu mati, að veita Íslendskum ríkisborgurum, ekki síst öldruðum Íslendingum, forgang í hjálpar- og líknarstarfi og heilbrigðisþjónustu. Þessir velferðar- og þjónustuþættir í samfélagi okkar urðu heiftarlega fyrir barðinu á síðustu ríkisstjórn vinstri manna og þeirra afla, sem telja sig nú búa yfir meiri náungakærleik en aðrir! Óútfylltar ávísanir á samfélagið. Ég bendi á, að sjálfskipaðir mannvinir eiga ekki að geta útfyllt innistæðulausar ávísanir á sameiginlega sjóði þjóðar okkar, sem þarfnast fremur sjúkrahúsa og velferðarþjónustu innanlands, en að taka á móti flóttamönnum, umfram það, sem hægt er að ráða við, en þeir eru þegar orðnir yfir 60 á þessu ári. Borgarastyrjöldin í Sýrlandi hefur gert þessi mál óviðráðanleg í Evrópu, en þessi styrjöld var hafin fyrir fjórum árum, af andstæðingum fjöltrúarsamfélags Assads og Alawita, sem eru eina vörnin fyrir Kristna í Sýrlandi.Súnní múslímar undir nöfnum Þjóðfrelsishreyfingar, Jabhad al-Nusra og ISIS hafa herjað grimmilega á Kristna, og eyðilagt dýrmætustu menningarperlur þeirra, eins og t.d. kirkjuna í Antíokkíu, sem hefur í anda Múhameðs spámanns eytt öllu, sem minnir á aðra menningu en íslam. Drápsaðferðir og grimmd ISIS minnir einnig um margt á útrýmingarherferð Tyrkja á hendur kristnum á árunum í kringum fyrri heimsstyrjöld.Tyrkir eru sérfræðingar í Kristnieyðingu.Þó að Kristnir íbúar Sýrlands hafi enn verið um 10% þjóðarinnar við upphaf borgarastyrjaldarinnar, þar í landi, er hætt við að með sama áframhaldi verði Kristnir Sýrlendingar á yfirráðasvæði súnní-íslams ekki margir, þegar hernaðarsigur súnní-múslíma verður orðinn staðreynd. Menn skyldu minnast þess, að við upphaf fyrri heimsstyrjaldar voru Kristnir íbúar Anatólíu, Assýríu og svæðanna við strendur Svartahafs og Eyjahafs, sem nefnast Tyrkland í dag, um sex milljónir. Í dag eru þeir rösklega 100.000 eða um 0,2% íbúa Tyrklands, sem er í raun eintrúarríki súnní-íslams, eins og fyrirhugað er í Sýrlandi. Eitt ríki, ein trú, var kjörorð Ungu Tyrkjanna og Pashanna, sem hófu Kristnidrápin, en þau náðu lokatakmarki sínu undir forystu Mustafa Kemal Pasha Atatürk, við stofnun Tyrklands árið 1923. Sami leikur virðist nú hafa borist til Sýrlands og hafa Tyrkir sannarlega áhrif á framgang mála. Nú, sem fyrri daginn láta Kristnir íbúar Evrópu, það sig litlu varða, þó að trúbræður þeirra í Mið-Austurlöndum, verði sífellt aðþrengdari og litið er framhjá þeirri staðreynd, að Kristnu fólki er hent fyrir borð á bátkænum á leið yfir Miðjarðarhafið frá Afríku og drepið annars staðar á flótta sínum í múslímsku bylgjunni, sem nú skellur á Evrópu.Blekkingarleikur vinstri manna.Að lokum vil ég benda á það hversu villandi áróður vinstri manna hérlendis er, varðandi hina örlagaríku flóttamannabylgju, sem er yfir Eyjahaf og Miðjarðarhaf þessa dagana. Sá sorglegi atburður gerðist við Eyjahafsstrendur Tyrklands, nálægt Bodrum, þar sem mörgum Íslendingnum finnst gott að spegla sig í sólinni, að kúrdísk fjölskylda frá stríðsátakastaðnum, Kobane, við landamæri Sýrlands og Tyrklands, lenti í hafi, er bát hvolfdi, og drukknuðu allir, nema fjölskyldufaðirinn, Abdullah Kurdi. Myndin af drukknuðum syni hans Aylan, 3 ára, hefur farið eins og eldur í sinu um heimsbyggðina, og hafa viðbrögð, m.a. vinstri manna hérlendis, verið þau, að kenna mannhatri annarra Íslendinga um atvikið! Kúrdar eru ofsóttir í Tyrklandi, þó að þeim hafi ekki verið nær útrýmt, eins og Kristnum. Nú hefur komið fram í tímaritinu Guardian og í Íslendska Ríkissjónvarpinu, að föðursystir litla drengsins, sem búsett er í Kanada, kennir illri meðferð Tyrkja á Kúrdafjölskyldunni um það, hvernig fór, þrátt fyrir að hún hefði greitt Tyrkjum fyrir að hýsa fjölskylduna. Abdullah sjálfur segir að það sé ekki sök Evrópuríkja, hvernig komið sé fyrir honum, heldur Arabaríkja og Tyrkja, sem hafa varla gert neitt til að lægja stríðsátökin í Sýrlandi. Orðrétt segir Abdullah Kurdi: Ég vil, að ríkisstjórnir Arabalanda, ekki Evrópuríkja, sjái hvað kom fyrir börnin mín, og bið, að vegna þeirra verði fólki hjálpað. Ég vil ekkert annað. |