| Samstaða þjóðar NATIONAL UNITY COALITION Baráttusamtök fyrir sjálfstæðu ríki á Íslandi og fullveldisréttindum almennings. Stöndum vörð um Stjórnarskrá Lýðveldisins. |
Ísland á enga sök við Rússland.Fyrst birt í Morgunblaðinu 15. ágúst 2015.
Loftur Altice Þorsteinsson.
Það ber nú til tíðinda, að ríkistjórn Ísland telur sig eiga sök við Rússland og neitar að eiga viðskipti við það fólk sem byggir hið forna Garðaríki. Samt liggur fyrir, að Rússland er ekki í hópi þeirra ríkja sem beitt hafa hervaldi eða efnahagsþvingunum gegn Íslandi. Rússland hefur þvert á móti lagt okkur lið á erfiðum tímum, þegar nýlenduveldi Evrópu hafa sótt hart að okkur.Varla er neinum horfið úr minni hernám Íslands 1940. Sjálfstæði þjóðarinnar var þá fótum troðið og breytir engu þótt Bretland hafi átt í styrjöld við Þýðskaland undir stjórn Hitlers. Þorskastríðin fjögur á árunum 1948-1976, við Bretland og fleirri Evrópuríki, var ekki léttbær reynsla fámennri þjóð. Gegn Íslandi beittu nýlenduveldin bæði herskipum og viðskiptaþvingunum. Síðustu aðgerðir þessara »vinaþjóða« voru í tengslum við Icesave kúgunina, þegar ríki Evrópusambandsins sameinuðu krafta sína til að koma Íslandi á kné.Ísland taglhnýtingur Evrópusambandsins.Staðreyndir sögunnar um samskipti okkar við Evrópusambandið ættu öllum að vera ljósar. Einungis sterk samstaða þjóðarinnar og eindreginn vilji til að ráða okkar málum sjálf, hefur forðað okkur frá tjóni og niðurlægingu. Þrátt fyrir að nýlenduveldin hafi verið óspör á mútufé, hefur atlögum þeirra verið hrundið. Áframhaldandi tilvist Evrópustofu, áróðursskrifstofu ESB, er þó skýr vísbending um að núverandi ríkisstjórn er um megn að gæta fjöreggs landsins. Aumkunarverð linkind við Jóhönnu Sigurðardóttur og Össur Skarphéðinsson, vegna brots á Stjórnarskránni, er einnig ljóst merki um vanhæfni ríkisstjórnarinnar til að standa vörð um sjálfstæðið.Kjarninn í utanríkisstefnu núverandi ríkisstjórnar er að fylgja Evrópusambandinu í öllum málum. Þakkirnar eru þær, að ESB beitir okkur stöðugum hótunum um viðskiptaþvinganir, vegna makrílveiða í okkar eigin landhelgi. Undirlægjuhátturinn kemur meðal annars fram í samningi um loftslagsmál, þar sem Ísland heitir fullum stuðningi við arfavitlausa stefnu ESB, sem gengur þvert á vísindalegar staðreyndir. Samningurinn skerðir verulega getu Íslands til sjálfstæðra ákvarðana.Nú bætist við þátttaka Íslands í refsiaðgerðum gegn Rússlandi, sem jaðarþjóðum ESB er ætlað að bera kostnaðinn af. Á meðal fórnarlamba ESB eru Ísland og Grikkland, sem eru matvælaframleiðendur með mikilvæga viðskiptahagsmuni í Rússlandi. Refsiaðgerðirnar gera ekki ráð fyrir skerðingu á sölu Rússlands á jarðgasi til ESB, enda um mikla hagsmuni að ræða fyrir stórfyrirtæki ESB, sérstaklega þó Þýðskalands.Útþenslistefna Evrópusambandsins ógnar heimsfriði.Allt frá því að grunnur var lagður að Evrópusambandinu með stofnun Kola og stálbandalags Evrópu 1951, hefur útþensla bandalagsins verið reifarakennd. Útþenslan hefur gengið hraðar en Hitler þorði að vona og fá hliðstæð dæmi er að finna í mannkynssögunni. Heldst er hægt að finna sambærilega útþenslu í Jihad, heilögu stríði sona Allah. Merkileg er sú hliðstæða, að arabarnir nefna sín trúarbrögð Islam (friður) og ESB heldur fram þeirra röngu staðhæfingu að friður í Evrópu sé afleiðing stofnunar bandalagsins og ævintýralegrar stækkunar þess.Útþensla ESB hefur verið stöðug ógn við Rússland, því að nýgjar bandalagsþjóðir ESB eru að miklu leyti fyrrverandi Ráðstjórnarríki. Evrópusambandið beitir ekki bara mútum og áróðri, heldur var hervaldi beitt í Júgóslavíu 1991 og í Úkraínu var löglega kosin forseti Viktor Yanukovych hrakin úr landi 2014 með blóðugu valdaráni. Fullyrðingar ESB um að Rússland sé stöðugt að þenja út landamæri sín, eru í hróplegri mótsögn við augljósar staðreyndir.Hagsmunir Íslands liggja í frjálsri verslun á milli ríkja..Auðmjúkir þjónar Evrópsambandsins eru óeðlilega fjölmennir á Íslandi. Litlu munaði að þeim tækist að þvinga Icesave-klafann á þjóðina og ólögleg umsókn um innlimun landsins í ESB mun að eilífu lifa í þjóðarsálinni. Það sýnir vel niðurlægingu þessa fólks, að fyrir nokkrum dögum líkti ESB-vinurinn Vilhjálmur Bjarnason því yfir, að sjálfstætt Ísland væri engu betra en hóruhús. Hvaða nafngift er sanngjarnt að gefa þeim sem ekkert vilja fremur en að Ísland afsali sér öllum réttindum sjálfstæðs ríkis ?Úkraína er sex sinnum stærra en Ísland og þegnar ríkisins eru um 44 milljónir. Þar af eru nær 18% rússar, eða um 8 milljónir. Eru það ekki sjálfsögðu mannréttindi að svona fjölmennur hópur fái að ráða hvaða ríki þeir tilheyra ? Hvers vegna heldur Ísland sig ekki við þá utanríkisstefnu sem við höfum haft allt frá 874 ? Getur verið að núverandi ráðherrar meti svo mikils að fá að sitja veitslur í Brussel, að hagsmunir þjóðarinnar sitji á hakanum.Almenningur vill vita hvort ríkisstjórnin hefur sömu viðhorf til sjálfstæðiskrafna Skotlands og Catalóníu, eins og upplýst er að hún hefur til krafna rússa sem búsettir eru á Poltava-svæðinu, austan Dneper-árinnar. Við vitum að ESB berst hatrammlega gegn sjálfstæði smáþjóða, nema þær hafi tileinkað sér fullkomna þrælslund. Getum við vænts þess að Ísland styðji efnahagsþvinganir gegn Skotlandi og Catalóníu, ef þessar þjóðir heimta réttmætt sjálfstæði ?
|