Stríđ, ekki friđur - í bođi NATO

  
 
null   Samstađa ţjóđar
   
NATIONAL UNITY COALITION                                                           
   Baráttusamtök fyrir sjálfstćđu ríki á Íslandi og fullveldisréttindum almennings.
   Stöndum vörđ um Stjórnarskrá Lýđveldisins.

 

 

Stríđ, ekki friđur - í bođi NATO.

Fyrst birt í Morgunblađinu 04. júní 2016.



Ólafur Ţ. Jónsson.

Áriđ 1991 leystust Sovétríkin upp og Varsjárbandalagiđ. Ţar međ var horfinn grunnurinn sem Nató hvíldi á, en ţví bandalagi var ćtlađ annađ hlutverk og meira. Strax á tíunda áratugnum var ljóst ađ endalok kalda stríđsins bođuđu ekki friđ og einnig varđ ljós sú stađreynd ađ mesta stríđshćttan stafađi frá Nató-blokkinni. Áriđ 1999 afnam Nató sín landfrćđilegu mörk og breytti sér í hnattrćnt hernađarbandalag Vesturveldanna međ allan heiminn undir og ţéttriđiđ net herstöđva utan Bandaríkjanna. Nató er komiđ upp ađ landamćrum Rússlands í Eystrasaltsríkjunum ţremur, í Póllandi, Rúmeníu, Kákasus og Miđ-Asíu, og handan Beringssunds er Nató-Kanada.

Frá 1991 hefur ţađ veriđ stefna Bandaríkjanna ađ hreinsa upp ţađ sem ţau kalla hin gömlu skjólstćđingaríki Sovétríkjanna. M.ö.o. einstök ríki sem vilja varđveita sjálfstćđi sitt og sjálfsákvörđunarrétt, ţýđast ekki hnattvćđingu Vestrćnna auđhringa og eru í röngu liđi, ţ.e. eiga vingott viđ Rússland og Kína. Og ekki var látiđ sitja viđ orđin tóm. Fyrri innrásina í Írak gerđi Bandaríkjaher 1991 og réttlćtti hana međ ţví ađ Írak hefđi ráđist á fullvalda ríki. Ţriggja mánađa loftárásir Nató á Júgóslavíu 1999 voru réttlćttar međ mannréttindabrotum innan Júgóslavíu.

Svo kom 11. september 2001 og turnarnir tveir hrundu. Eftir ţađ heita allar hernađarađgerđir Bandaríkjanna og aftaníossa ţeirra »stríđ gegn hryđjuverkum«. Ráđist var inn í Afganistan áriđ 2001 ţegar Talíbanar, sem náđu völdum í landinu 1996, reyndust heppilegur blóraböggull vegna hryđjuverkanna 11. september. Stríđiđ ţar hefur reynst endalaust og ć fleiri telja ţađ óvinnandi. Seinni innrásin í Írak, innrás Bandaríkjanna, Bretlands og hinna viljugu, hófst 2003. Og enn er barist í Írak, sem klofnađi í ţrjú áhrifasvćđi ţjóđarbrota.

ÍSIS-hreyfingin illrćmda á upptök sín í Írak og hefur náđ undir sig miklu landi ţar og í Sýrlandi. Áriđ 2011 braust út uppreisn í Austur-Líbíu. Vesturlönd lýstu yfir ađ ţjóđarmorđ vćri í ađsigi og Nató hóf stórfelldar loftárásir á landiđ til stuđnings uppreisnarmönnum. Afleiđingin var sú ađ mismunandi hópar vígamanna tóku völdin og Líbía klofnađi í ţađ minnsta í ţrjá hluta og viđ tók borgarastyrjöld sem hvergi nćrri sér fyrir endann á og eyđilagđi Líbíu sem ríki. Vopnabúnađur sem streymdi frá Nató-ríkjunum til uppreisnarmanna endađi í mörgum tilfellum í Sýrlandi og Írak hjá Ísis-hreyfingunni. Hinn 11. apríl sl. lýsti Obama Bandaríkjaforseti ţví yfir ađ mestu mistök í stjórnartíđ hans hefđu veriđ árásirnar á Líbíu.

Í meira en átta mánuđi hafa Sádar, ásamt fleiri Persaflóaríkjum, látiđ sprengjum rigna yfir borgir og bći í Jemen sem svar viđ byltingu sem bćđi Bandaríkin og Sádi-Arabía voru ósátt viđ. Olíufurstarnir tóku ađ sér ađ sprengja landiđ í tćtlur til ađ koma á stöđugleika í landinu. Sádar hafa ásamt fleiri Persaflóa-ríkjum og Tyrklandi veriđ helsti bakhjarl hryđjuverkaherja í Sýrlandi, Líbíu og víđa í Afríku. Ţeir eru helstu kostunarađilar og líka hiđ hugmyndafrćđilega bakland Ísis, al-Kaída, al-Nusra og Boko Haram í Afríku. Ţessi samtök öll eru málaliđar, verkfćri í heimsvaldastríđi.

Nú hafa Tyrkir kastađ fyrir róđa áralangri friđarstefnu gagnvart Kúrdum, sem eru um fimmtungur ţjóđarinnar. Og frá 2015 notiđ fulls stuđnings Nató til ađ herja á Kúrda, ţar á međal í Norđur-Sýrlandi. Ţetta er framlag ţeirra til baráttunnar gegn hryđjuverkum. Hálfgildings sjálfstćđi Kúrdahérađanna í Írak og Sýrlandi vekur einfaldlega ótta tyrknesku stjórnarinnar.

Um miđjan febrúar lýsti utanríkisráđherra Tyrklands yfir ađ Sádar ćtluđu ađ senda bćđi herţotur og herliđ til Tyrklands, ţannig ađ Tyrkir og Sádar gćtu hafiđ sameiginlegan landhernađ í Sýrlandi, en bćtti viđ ađ ţađ yrđi ekki gert án samţykkis Bandaríkjamanna. Stríđiđ í Sýrlandi hófst í mars 2011 og hefur ţví stađiđ í meira en fimm ár. Ţrátt fyrir vopnahlé sem hófst 27. febrúar síđastliđinn heldur ţađ áfram, ţví ekki var reynt ađ semja viđ Ísis né heldur al-Nusra, hreyfingu sem tengist al-Kaída, og fleiri hópa sama eđlis. Samkvćmt nýjustu fréttum virđist ţađ hanga á bláţrćđi. Ţegar stríđiđ hófst hafđi ríkt friđur í Sýrlandi í 38 ár, eđa frá ţví 1973 í fjórđa stríđi Ísraelsmanna viđ Araba. Fyrir stríđiđ var Sýrland velmegunarríki, miđađ viđ nágrannaríkin. Menntunarstig hátt, heilbrigđiskerfiđ allgott og nćr öll börn gengu í skóla. Og Sýrland tók á móti meira en tveimur milljónum flóttamanna sem leituđu skjóls frá stríđinu í Írak.

Innrásirnar í Afganistan og Írak gengu illa. Ţá tóku Bandaríkin og strengjabrúđur ţeirra í Evrópu ásamt óvinum Sýrlands viđ Persaflóann ađ dćla fé og vopnum í al-Kaída í Sýrlandi og Írak, sem síđar stökkbreyttist í Ísis. Ef um raunverulega uppreisn fólksins í Sýrlandi vćri ađ rćđa hefđi stjórnarherinn fyrir löngu snúist gegn Assad forseta og hans mönnum. Ef Assad er harđstjóri er hann tiltölulega mildur í samanburđi viđ skíthćlana í Sádi-Arabíu og Katar, vini Bandaríkjanna. Lofthernađur Rússa í nokkra mánuđi til ađstođar stjórnarhernum hefur gert miklu meira í ţví ađ brjóta Ísis á bak aftur en lofthernađur Bandaríkjamanna og bandamanna ţeirra í eitt og hálft ár, enda um gervi-stríđ ađ rćđa í trássi viđ vilja réttkjörinnar stjórnar.

Ţađ segir sig sjálft ađ öll ţessi stríđ sem ég hefi hér nefnt hafa valdiđ gríđarmiklu tjóni og hörmungum. Tölur um mannfall er erfitt ađ meta, enda mjög misvísandi. Eitt er ţó víst ađ mannfalliđ er gífurlegt, ekki síst í Sýrlandi, auk sćrđra og örkumlađra. Mestmegnis óbreyttir borgarar, karlar, konur og börn. Hvađ skyldu ţau vera mörg börnin sem látiđ hafa lífiđ í ţeim stríđum sem ég hefi hér nefnt? Litlir Gyđingar geta orđiđ stórir Gyđingar, sagđi gasklefafólkiđ Ţýđska. Viđ bćtast svo milljónirnar sem stríđsátökin hafa hrakiđ á flótta. Allir vita ađ Bandaríkin valda ţeim straumi og ţjóđirnar sem styđja stríđ ţeirra.

Höfuđsökudólgurinn er samt laus allra mála. Hann er ábyrgđarlaus. Allir eru ţeir, ásamt nánustu samstarfsmönnum sínum, sekir um stríđsglćpi og hryđjuverk Bandaríkjaforsetarnir frá 1991 ađ telja. Bush eldri, Clinton, Bush yngri og Obama. Og nú hafa Bandaríkin stađiđ málstola ţađ sem af er ári vegna sinna arfhelgu forsetakosninga. Bandaríska auđvaldiđ ţarf ađ skipta um verkfćri, velja nýjan stríđsherra. Og nú eru ţeir komnir aftur til Íslands međ ţrjá flugvelli undir, til ađ tryggja öryggi okkar gagnvart Rússum. Og ţessu er trúađ. Ekki bylur í einni einustu tunnu á Austurvelli. Lygin er aldrei góđ, en ţó er hún illkynjuđust ţegar menn ljúga sig í sátt viđ eigiđ auđnuleysi.

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband