Áætlanir Sunni-Múslima um þjóðarmorð á Ala-verjum í Sýrlandi

  
 
null   Samstaða þjóðar
   
NATIONAL UNITY COALITION                                                           
   Baráttusamtök fyrir sjálfstæðu ríki á Íslandi og fullveldisréttindum almennings.
   Stöndum vörð um Stjórnarskrá Lýðveldisins.

 

 

Áætlanir Sunni-Múslima um þjóðarmorð á Ala-verjum í Sýrlandi.

Fyrst birt í Morgunblaðinu 19. maí 2016.



Loftur Altice Þorsteinsson.

Ala-verjar (Alawiyyah) er Kristin þjóð í Sýrlandi, sem fyrr á öldum nefndist Nusayriyyah. Á 11. öld voru Ala-verjar að mestu búsettir á tveimur svæðum. Annars vegar í Norð-vestur Sýrlandi (Latakia+Idlib+Aleppo) og hins vegar í Bagdad í Írak. Samfélagi þeirra í Bagdad var eytt af Mongólum 1258 og í Aleppo drápu Mongólar tugi þúsunda 1260. Undarlegt er - en þó skiljanlegt, að Ala-verjar segjast vera Múslimar, þótt þeir trúi á Heilaga þrenningu, endurfæðingu og haldi upp á Kristnar trúarhátíðir, en virði lítils Kóraninn og siði Sunni-Múslima.

Krossfararnir töldu í fyrstu, að Ala-verjar væru venjulegir Múslimar og börðust gegn þeim við komuna til Sýrlands 1097. Þegar kom í ljós að svo var ekki, tóks gott samband við þá. Þannig aðstoðuðu Krossfararnir Ala-verja að endurheimta flesta þá kastala sem þeir höfðu misst 1071, í átökum við Múslima. Að loknum Krossferðunum var regla, að Múslimar ofsóttu og drápu Ala-verja. Þetta stunduðu Mamlúkar sem réðu Sýrlandi 1260-1516 og þegar Ottómanar í Tyrklandi náðu völdum í Sýrlandi 1516, er talið að þeir hafi drepið yfir 90.000 Ala-verja.

Eftir Heimstyrjöldina fyrri stjórnaði Frankland á Sýrlandi til 1946 í umboði Þjóðabandalagsins og þeir gáfu Ala-verjum nafnið Alawiyyah, til að verja þá ofsóknum Múslima. Sambandið við Frankland var svo gott, að 1920 eignuðust Ala-verjar sitt eigið þjóðríki við strönd Miðjarðarhafs, sem stóðst ágang Sunni-Múslima til 1936. Meðal Ala-verja voru skiptar skoðanir um hvort þeir ættu að ganga til liðs við Sunni-Múslima sem börðust gegn Franklandi og fyrir sjálfstæðu Sýrlandi. Með aðstoð Shia-Múslima tókst Ala-verjum smám saman að fá viðurkennt að þeir væru Múslimar og fengu þegnrétt í Sýrlandi.

Sunni-klerkar hafa stjórnað ofsóknum gegn Ala-verjum.

Ofsóknum á hendur Ala-verjum hefur löngum verið stjórnað af trúarleiðtogum (imam) Sunni-Múslima. Þeir hafa gefið út »fatwa« og þannig veitt réttlætingu á drápum og ofsóknum. Nefnum eldsta dæmið um »fatwa« á hendur Ala-verjum.

»Fatwa« 1305 - Taqi ad-Din Ahmad ibn Taymiyyah (1263-1328) var bókstafstrúar Múslimi sem hataði Ala-verja. Hann úthlutaði Ala-verjum »fatwa« í þrígang og sagði að þeir væru meiri trúleysingar en Kristnir og Gyðingar. Ibn Taymiyyah lagði grunn að Wahhabisma, sem er annáluð öfgastefna og ríkjandi í Saudi-Arabíu. Trúir hefðinni (sunnah) hafa síðari fordæmingar Sunni-Múslima gjarnan verið endurtekning á þessu forna »fatwa«.

Hryðjuverkasamtökin Bræðralag Múslima hatar Ala-verja eins og alla sem ekki eru Sunni-Múslimar. Samt höfðu þeir lengi fengið að starfa óáreittir í Sýrlandi. Árið 1980 gerðu þeir tilræði við Hafez Assad forseta og þá þótti Ala-verjum mælirinn fullur. Bræðralag Múlima var að nafninu til hrakið frá Sýrlandi, en þessi samtök eru búin að vera virk í ISIS og öðrum hryðjaverkasamtökun Sunni-Múslima.

Katar er miðstöð hatursboðskapar Sunni-Múslima.

Araba-ríkið Katar liggur á tanga sem teygir sig frá Saudi-Arabíu út í Persaflóa og er 11.586 km2 að flatarmáli. Svæðið tilheyrði Tyrkjaveldi 1871-1915, en þá náði Bretland svæðinu og stjórnaði því til 1971. Í Katar er einveldi og við völd er al-Þani ættin af Tamimi kynþættinum. Af þessum kynþætti er einnig Salmann Tamimi sem er »imam« Sunni-Múslima á Íslandi.

Núverandi konungur í Katar er »Tamim bin Hamad Al Thani«, sem er sonur drottningarinnar »Mozah bint Nasser Al Missned« einnar af þremur eiginkonum fyrrverandi konungs. Það má þykja athyglivert að albróðir núverandi konungs er »Mohammed bin Hamad bin Khalifa Al Thani« sem þekktur er fyrir að taka þátt í svindli Ólafs Ólafssonar í Samskipum, með hlutabréf í Kaupþingi.

Sjónvarpsstöð í Katar með Arabiskt "menningarefni".

Arabarnir í Katar aðhyllast Sunni-Islam, eins og frændur þeirra í Saudi-Arabíu. Það eina sem umheimurinn veit um Katar er að þar er starfrækt sjónvarpsstöðin Al-Jazeera í eigu Al-Þani ættarinnar, eins og allt annað í landinu. Viðurkennt er að stöðin er starfrækt til að útvarpa áróðri sem Al-Þani ættin telur þóknanlegan. Líklega hefur Al-Jazeera yfir 500 milljónir áhorfenda í fjölmörgum ríkjum og eru þeir flestir Sunni-Múslimar.

Einn vinsælasti umræðu-þáttur sem Al-Jazeera sýnir nefnist »Andstæð sjónarmið« og er þar fjallað um margvísleg málefni í Araba-heiminum, á sviði stjórnmála, efnahagsmála, samfélagsmála og trúmála. Stjórnandi þáttanna nefnist Faisal Al-Kassim og er Sýrlendskur Druzi að uppruna, en hefur ánetjast Sunni-Islam og þykir Aröbunum það merki um mátt Allah. Þann 08. maí 2015 var í þættinum umfjöllum sem vakið hefur hneykslun og reiði margra utan Araba-heimsins.

Þátturinn fjallaði um spurninguna: »Ættum við að drepa alla Ala-verja?« Í upphafi þáttar, sagði stjórnandinn frá könnun sem hann hafði látið gera á meðal áhorfenda stöðvarinnar. Greindi hann frá, að 96,2% þátttakenda hefðu svarað spurningunni játandi. Sjálfur tók hann sterklega undir það sjónarmið, að sjálfsagt væri að fremja þjóðarmorð á Ala-verjum. Gestina greindi á. Þáttinn er hægt að skoða á Netinu: (https://www.youtube.com/watch?v=ULtNYSUqYHw).

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband