Vogunarsjóðir skila gjöfum Steingríms

  
 
null   Samstaða þjóðar
   
NATIONAL UNITY COALITION                                                           
   Baráttusamtök fyrir sjálfstæðu ríki á Íslandi og fullveldisréttindum almennings.
   Stöndum vörð um Stjórnarskrá Lýðveldisins.

 

 

Vogunarsjóðir skila gjöfum Steingríms.

Fyrst birt í Morgunblaðinu 03. nóvember 2015.



Víglundur Þorsteinsson.

Það var fróðlegt að lesa um þá ákvörðun kröfuhafa Glitnis að skila Íslendska ríkinu Íslandsbanka í býttum fyrir það að losna úr höftum með erlendar gjaldeyriseignir slitabúsins. Ákvörðun sem í meginatriðum lýtur að því að skilja krónueignir slitabúsins eftir hér á landi gegn því að fá að fara með erlendar eignir úr höftum.

Þegar Steingrímur J. Sigfússon ákvað að rifta ákvörðunum Fjármálaeftirlitsins frá haustinu 2008 um afskriftir og niðurfærslur lána úr gömlu bönkunum sem voru færðar í nýja á nettó afskrifuðu verði samdi hann við erlenda kröfuhafa gömlu bankanna um að þeir fengju sjálfdæmi um handrukkun og innheimtu í nýju bönkunum þvert gegn reglum neyðarlaganna.

Með því opnaðist þeim leið að óvæntum feng sem vogunarsjóðirnir höfðu ekki reiknað með þegar kröfur bankanna gengu kaupum og sölum á markaði haustið 2008 og vorið 2009.

Ýmsir hafa reynt að leggja mat á þessar gjafir Steingríms. Það er nærtækast að gera það með því að bera saman efnahagsreikninga bankanna á milli 2008 og 2015.

Fljótt á litið sýnast gjafir hans til vogunarsjóðanna vera um 500 milljarðar króna á núvirði. Ef til vill þó nokkru hærri því enn eru ekki öll kurl til grafar komin.

Það þurfti því að halda vel á við lok uppgjöra slitabúanna áður en þeim yrði hleypt úr höftum. Í raun þurfti að tryggja að vogunarsjóðirnir skildu eftir í landinu að lágmarki þessar örlætisgjafir Steingríms J. Sigfússonar.

Tímasprengja aftengd.

Á blaðamannafundi við kynningu á samþykki ríkis og seðlabanka á stöðugleikaskilyrðunum nú á dögunum skilgreindi Már Guðmundsson stöðuna svo »að nú væri búið að aftengja tifandi tímasprengju«.

Undirliggjandi í þeim orðum var að Steingrímur hefði verið sprengjusmiðurinn með því að leyfa sniðgönguna við neyðarlögin og riftanirnar á ákvörðunum FME frá 2008. Allt um það vissi Már öðrum betur vegna atbeina Seðlabankans í málinu. FME var jafnframt liðtækt í þeirri aðstoð.

Það er auðvelt að skilja af hverju vogunarsjóðirnir vilja skila banka eins og Íslandsbanka og losna sem fyrst úr höftunum. Þeir vita manna best að uppfærði gróðinn af afskrifuðum lánum er síður en svo á lausu. Hann er ekki annað en uppfærðar áður afskrifaðar skuldir sem höfðu bólgnað við hrunið og standa inni í bankanum sem uppfærðar skuldir einstaklinga og atvinnufyrirtækja gegn reglum neyðarlaga. Skuldir sem eftir er að borga eða fasteignir í fasteignafélögum sem bankarnir settu á fót sem umbreyta þyrfti í reiðufé.

Þeir vita að það mun taka mörg ár að rukka þær skuldir inn og enn fleiri að breyta þeim í erlendan gjaldeyri. Það hentar þeim því vel að nota örlætsgjörninga Steingríms sem skiptimynt til að sleppa frá höftunum með rauneignir búsins í erlendum gjaldeyri sem þegar eru geymdar í útlöndum. Þeirra stóri ávinningur er að fá þær erlendu eignir sem fyrst til að fjárfesta á ný annars staðar.

Kreppuframlenging í stað skjaldborgar.

Þessir alvarlegu gjörningar Steingríms þegar hann braut Íslendsk lög og rifti ákvörðunum Fjármálaeftirlitsins árið 2009 í þágu AGS og ESB framlengdu kreppuna á Íslandi um mörg ár.

Það svo að enn eru svöðusár eftir á tugþúsundum Íslendinga sem misstu allt sitt í boði Steingríms og vinstri stjórnarinnar sálugu. Stjórnarinnar sem allt vildi til vinna að komast á stökki í ESB sumarið 2009. Fórnaði í þeim tilgangi því skjóli sem neyðarlögin höfðu búið þjóðinni. Tókst hins vegar þá að ljúga því að okkur að hún væri að smíða þjóðinni skjaldborg með verkum sínum. Það var ekki fyrr en við kosningarnar 2013 að þjóðin fékk sitt tækifæri til að jafna um við þessa óheiðarlegu stjórnmálamenn.

Afleiðingar þessara verka þeirra eru að nú má sjá tugþúsundir sem áður bjuggu í eigin húsnæði meðal annarra á leigumarkaðnum eftir að bankarnir eru búnir að selja ofan af þeim með hjálp Árna Páls-laganna. Eða upp á ættingja og vini, komnir á »Hótel mömmu«. Þetta ásamt ýmsu öðru veldur nú eftirspurnarsprengingu á leigumarkaði.

Sumir flúðu til Noregs. Aðrir sitja enn í íbúðum og húsum með uppreiknaðar skuldir sem þeir eiga eftir að strita fyrir. Hjá þeim heldur kreppan áfram. Nú kóróna vogunarsjóðirnir allt verkið með því að láta Íslendska ríkið rukka Steingrímsgjafirnar. Sjálfir fljúga þeir með sólsetrinu vestur til Wall Street með alvörupeningana og skilja Íslendsk stjórnvöld eftir í handrukkinu. Það mun síðar koma í ljós hvernig tekst til um það.

Steingrímur þenur brjóst og sperrir stél.

Til að undirstrika heimsku sína stekkur Steingrímur J. Sigfússon nú upp á stól þegar vogunarsjóðirnir eru að skila Íslandsbanka og eignar sér málið sem árangur af eigin dugnaði. Þegar hann »hvorki borðaði né svaf« að eigin sögn við að bjarga þjóðinni á árunum 2009 og 2010 en þá kvaddi hann »björgunarvaktina í fjármálaráðuneytinu«.

Það fer best á því núna að fá lánuð orðin sem Matthías Jochumsson lagði í munn Jóni sterka eftir að Eyjólfur vinnumaður hafði lagt hann í bændaglímunni. Sáuð þið hvernig ég tók hann, drengir?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband