Naglasúpu-tilgátan um hlýnun veðurfars af völdum manna

  
 
null   Samstaða þjóðar
   
NATIONAL UNITY COALITION                                                           
   Baráttusamtök fyrir sjálfstæðu ríki á Íslandi og fullveldisréttindum almennings.
   Stöndum vörð um Stjórnarskrá Lýðveldisins.

 

 

Naglasúpu-tilgátan um hlýnun veðurfars af völdum manna.

Fyrst birt í Morgunblaðinu 04. júlí 2015.



Loftur Altice Þorsteinsson.

Um nokkurt skeið hefur þeirri Babylonsku (bábilju) verið haldið að fólki, að veðurfar hafi farið hlýnandi vegna brennslu kolefna. Við bruna á lífrænum jarðefnum losnar frumefnið kolefni úr föstu formi og umbreytist í lífsanda, öðru nafni koldíoxíð (CO2). Þar með er viðhaldið þeirra hringrás kolefnis, sem er undirstaða lífs á Jörðinni. Því meira sem er af lífsanda í andrúminu, þeim mun gróðursælla verður umhverfi okkar og fæða fyrir fleirra fólk verður aðgengileg.

Naglasúpu-tilgátan var í upphafi kennd við gróðurhús, en samlíkingin er svo fráleit að nú reynir enginn að halda því fram að opið andrými Jarðar eigi eitthvað sammerkt með lokuðu rými gróðurhúss. Hins vegar er staðreynd, að lífsandinn hlýnar fyrir áhrif hitageislunar. Við hlýnunina þenst hann út og verður eðlisléttari. Hlutfallslega eðlislétt gasefni stíga til himins og kólna þar hraðar en niður við jörðu. (Ég geri ráð fyrir að lesendur þekki söguna um naglasúpuna).

Heimskuleg afstaða katólsku kirkjunnar..

Forustu um blekkinguna um »hlýnun veðurfars af völdum manna« hefur haft fólk sem að eðlisfari er öfgamenn. Þetta er fólk sem við á Íslandi sáum taka undir Icesave-kröfur nýlenduveldanna og sem horfir til Evrópusambandsins með sömu löngun og gyðingar horfðu til Gósenlandsins í Egyptalandi. Það sem er nýtt og ógnvekjandi við umræðuna, er hin fráleita aðkoma katólsku kirkjunnar, en páfinn hefur sent heimsbyggðinni umburðarbréf þar sem hann tekur afstöðu til vísindalegs deiluefnis. Upp í hugann kemur glæpsamleg framganga páfastóls gegn Jordanus Brunus og Galileo Galilei. Menn hafa ekki heldur gleymt sölu páfans á aflátsbréfunum alræmdu.

Jordanus Brunus (1548-1600) var Ítalskur stjarnfræðingur, heimpekingur og stærðfræðingur. Hann er í hávegum hafður fyrir tilgátur um veröldina, sem hann taldi vera endalausa og án tiltekinnar miðju. Jordanus taldi stjörnurnar vera fjarlægar sólir, sem hefðu eigin flandur-stjörnur (planetes asteres) og á þeim væru hugsanlega lífverur. Rannsóknarréttur katólsku kirkjunnar dæmdi Jordanus til dauða og var hann brenndur.

Galileo Galilei (1564-1642) var Ítalskur stjörnufræðingur, verkfræðingur og heimspekingur. Hann er talinn einn mesti vísindamaður allra tíma og forgöngumaður vísindabyltingarinnar á Endurreisnartímanum. Í andstöðu við kirkjuna, hélt Galileo steinharðlega fram þeirri tilgátu að Sólin væri miðja heimsins og flandur-stjörnurnar snérust um hana. Fyrir afstöðu sína hlaut hann ofsóknir og fangelsun.

Á okkar dögum gengur katólska kirkjan fram fyrir skjöldu og ræðst með glórulausu ofstæki gegn brennslu kolefna úr iðrum Jarðar. Staðbundin vandamál vegna mengunar hafa víðast verið leyst og ekki verður andmælt að ódýr orkuframleiðsla er undirstaða þeirrar velmegunar sem stækkandi mannfjöldi nýtur. Jafnvel páfanum ætti að reynast auðvelt að skilja, hvers vegna aukning lífsanda getur ekki valdið hlýnandi veðurfari og þar að auki hefur hlýnunin sem mældist á síðustu öld ekki haldið áfram.

Vísindalegar staðreyndir afsanna Naglasúpu-tilgátuna..

Naglasúpu-tilgátan segir okkur að hlýnun einhverra hluta í andrúmi Jarðar er sambærileg við hlýnun nagla í súpu. Sú varmaorka sem í súpunni fer til að hita naglann, getur ekki komið annar staðar frá en úr súpunni sjálfri. Þetta hefur að einhverju litlu leyti þau áhrif að súpan sjálf kólnar, en alls ekki þau áhrif að allt sem er í pottinum hitni. Hliðstæð atburðarás verður í andrúminu, þegar lífsandinn (CO2) hitnar.

Lífsandinn tekur til sín varma og auðvitað þeim mun meiri sem andrúmið inniheldur meira af koldíoxíði. Þessi varmi kemur úr umhvefi lífsandans, sem að stærstum hluta er vatnsgufa. Heildar varmaorka í andrúminu eykst ekki við þennan orkuflutning. Lífsandi sem hefur hitnað rís til himins eins og stóra systir vatnsgufan, þar sem varmaorkan streymir út í geyminn. Hvort varmajafnvægi ríkir á Jörðinni ræðst af hlutfalli innstreymis frá Sólu og útstreymis frá gufuhvolfinu.

Auk þess sem tilgátan um »hlýnun veðurfars af völdum manna« stendst ekki eðlisfræðilega, sýna mælingar að ekkert samband er annars vegar á milli magns lífsanda í andrúminu og hins vegar meðal-hitastigs. Koldíoxíð í andrúminu eykst árlega nær samfellt um 0,54%, en meðal-hitinn hefur haldist stöðugur síðustu 18 ár og 6 mánuði, eða í 222 mánuði samfleytt. Meðfylgjandi tvö línurit sýna þessar staðreyndir.

keeling_curve_25_june_2015_co2_mauna_loa_sl.jpg

no_global_warming_for_18_years_and_6_months_sl.jpg

Það er illa komið fyrir mannkyni, ef æsingamenn í páfagarði eiga að skera úr um vísindaleg álitaefni. Sérstaklega er þetta mikið áhyggjuefni, ef um er að ræða undistöðu hagkerfa margra ríkja eins og gildir um orkunotkun. Þá er ekki síður mikilvægt, að losun lífsanda gefur lífríkinu aukna fæðu og milljónum manna líf. Ísland ætti að hafa forustu um að berjast gegn Babylonskum ranghugmyndum eins og Naglasúpu-tilgátunni um »hlýnun veðurfars af völdum manna«.




« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband